Pjakkur sumarið 2004

miðvikudagur, 30. janúar 2008

Sæl og blessuð....

Þar sem að mér hafa borist margar kvartanir yfir því að hafa blekkt fólk með síðustu færslunni minni (þ.e. fólk var glatt yfir að sjá nýja færslu og uppgötvaði svo að hún var ekki á íslensku) þá ákvað ég nú að hafa eina færslu á íslensku í janúar. Þó svo að ég geti nú ekki sagt að ég hafi það mikið að segja.... Allavega ekki mikið sem að ég vil setja á netið enn sem komið er.
Anyway, þá er ég í vinnunni núna og er að fara að setja inn efni á vefsíðu vinnunnar eftir smá stund. Það er búið að vera alveg fullt að gera síðan í síðustu viku sem að er frábært því að ég var að deyja úr leiðindum á tímabili. Ég bara gjörsamlega höndla ekki vinnur þar sem er ekkert að gera og þegar það kom mánuður í svoleiðis tímabili hérna þá var ég vægast sagt að drepast.
En ég ætla ekki með í kórferðina til Berlínar, Poznan, Kraká og Varsjá í maí. Hef ekki efni á því. LÍN nefnilega ákvað að myrða mig um daginn og send mér bréf þar sem að ég er rukkuð um yfir 100 þúsund krónur. Þetta er vegna þess að þeir létu mig fá OF mikinn pening í fyrra. Hvernig í andskotanum átti mér að detta í hug að þetta væri of mikill peningur. Þetta var alls ekki mikið. En þannig að núna er ég að fara að borga 15 þús. kr. á mánuði til LÍN næstu 10 mánuðina. Ég er sko ekki með há laun þannig að þetta er þvílíkt áfall. Sérstaklega þar sem að ég tók lánið á bílnum mínum bara í ár þannig að ég er að borga slatta í hann á mánuði og ég sé það að ég verð að fá mér aukavinnu ef ég ætla að geta staðið fyrir svona leiðindar auka útgjöldum. Svo er ég líka með myntkörfulán og það er bara búið að hækka núna þar sem að krónan ákvað að vera svona leiðinleg um þessar mundir.
Jæja, þá er ég búin að kvarta um peningamál. Núna ætla ég að hugsa hvað ég hef meira að segja!!! ummmmmmmmmmmmmm................... Já, ef einhver hefur einhverja sniðuga aukavinnu handa mér um helgar sem er ágætlega borguð þá megiði endilega hringja í mig :D
Mig vantar eiginlega aukavinnu strax...
En jæja, ég hef ekkert meira að segja í augnablikinu - nema náttúrulega það sem að ég vil ekki setja á internetið svo að þið sem að hafið ekki heyrt það fáið bara að heyra af því síðar....

14 ummæli:

Bína sagði...

jei blogg, og ánægð með að það var á íslensku núna ;) knús og kossar

Nafnlaus sagði...

ég held ég viti... eða veit ég? Gaman að sjá færslu, nenni ekki að læra....

Nafnlaus sagði...

Ég veit hvað átt er við, er það ekki? :-) Gangi þér vel með þín mál skvís!

Þórdís Anna Hermannsdóttir sagði...

Já stelpur mínar... þið vitið ;-)

Nafnlaus sagði...

Hæ! þú ert komin á tengla listan minn! Hlakka til að sjá þig á þriðjudaginn ;)

Nafnlaus sagði...

Nú styttist í að ég leggi inn nýja kvörtun... :-o

Nafnlaus sagði...

er ekkert að gerast þarna??? ...þú ert verri í þessu en ég! :p blog girl!

Nafnlaus sagði...

Hér kemur það: formleg kvörtun vegna bloggleysis!

Nafnlaus sagði...

þú ert lélegur bloggari!

Nafnlaus sagði...

KVART!!!!

... og til hamingju með daginn! ;)

Nafnlaus sagði...

Væl! Þú ættir nú að geta laumast til að blogga í nýju vinnunni ;o)

Nafnlaus sagði...

ertu bara að safna kommentum, eða hvað???

Nafnlaus sagði...

Þú sökkar sem bloggari!!!

Nafnlaus sagði...

Kommon!

R.I.P. Pjakkur (23.05.2004 - 22.11.2007)

R.I.P. Pjakkur (23.05.2004 - 22.11.2007)
Pjakksalingurinn minn þín er sárt saknað.