Pjakkur sumarið 2004

fimmtudagur, 25. september 2008

Veit ekki hvað er komið yfir kelluna!!!

Og þá er ég að tala um mig! Bara tvö blogg komin í september, vá þetta er bara met. En já, það er svakalega gaman að vita að fólk var ekki búið að gefast alveg upp á mér hérna. Svo langar mig líka til að segja ykkur að ég mun líka sakna ykkar mikið en allir eru velkomnir í heimsókn í yndislegu íbúðina sem ég verð í sem er EKKI í Alaska ;p og ég lofa að setja inn mynd (þ.e. ef ég finn myndavélina mína áður en ég fer út og næ að taka hana með, annars kemur bara mynd í desember þegar ég er búin að kaupa)... En ég verð með svefnsófa og alles þannig að því fleiri sem koma í heimsókn því betra :-D
En mér finnst námið sem ég skellti mér í núna svakalega skemmtilegt. Ég ætla einmitt að reyna að klára sem flest verkefni áður en ég fer út svo að lesturinn er í smá pásu núna. Ég er búin að skila 2 verkefnum af 3 sem ég ætla að skila áður en ég fer út í einum áfanganum. Við fáum hin verkefnin ekki fyrr en í nóvember svo að ég verð bara að bíða róleg. En ég er að fara að demba mér á fullu í ritgerðina í Heimssögu fyrir 1815 áfanganum. Ég er viss um að ykkur hefði aldrei dottið þetta í hug en ég er búin að fá leyfi fyrir að skrifa ritgerð sem tengist forn Egyptalandi, surprise surprise ;p Mér finnst þetta mega áhugavert en ég ætla að skrifa um Hatchepsut - the female pharaoh... Var að finna bækur um efnið á bókhlöðunni í dag og svo er bara að sökkva sér í efnið. Ég ætla að reyna að vera búin að allavega skrifa uppkast að meginmáli í næstu viku. En þetta er nú svo sem mjög stutt ritgerð, bara 2000 orð svo að ég þarf að passa mig að skrifa alveg svakalega afmarkað um þetta. Hmmm pínku flókið en jæja...

4 ummæli:

Bína sagði...

jei jei...gaman gama...um að gera að vera dugleg að blogga...við erum alvarlega að kanna það hvort við getum ekki komið og kíkt á þig í byrjun jan....fer samt eftir því hvenær ég byrja í undirbúningskúrsum í skólanum....en fæ að vita það í okt/nóv og þá könnum við þetta og verðum í bandi við þig..

knús frá Danmörku!

Þórdís Anna Hermannsdóttir sagði...

híhí ég ætla allavega að reyna að vera dugleg :) En ég hlakka svakalega mikið til að vita hvort þið komist í heimsókn :D verður geggjað gaman ef þið komist :D

Nafnlaus sagði...

hehehe, þú að "tala" lítið og afmarkað -gangi þér vel ;o) :p
En já, það gengur merkilega mikið betur að blogga þegar maður er í skóla.

Kveðja austan frá læk

Nafnlaus sagði...

en áhugavert efni sem þú valdir að skrifa um :) gangi þér vel með ritgerðina og allt skvís
heyrumst fljótlega

knús frá álaborg

R.I.P. Pjakkur (23.05.2004 - 22.11.2007)

R.I.P. Pjakkur (23.05.2004 - 22.11.2007)
Pjakksalingurinn minn þín er sárt saknað.